Birgir Skulason Snorkl3 scaled

Næstu námskeið

Við hjá Freedive Iceland höldum fríköfunarnámskeið reglulega!

Í raun eru alltaf einhver námskeið í gangi þar sem að við kennum á þeim tímum sem hentar ykkur. En yfirleitt eru þau eitthvað á þessa leið:

Öll bókleg kennsla er á netinu núna, mikið af bæði lesefni og videó. Hægt að byrja á því hvenær sem er og klára áður en byrjað er á verklega hlutanum.

Mánudagur  kl. 19:00-21:00 – Verkleg kennsla í sundlaug.

Áframhald svo ákveðið með nemendum sjálfum (Þeir sem eru á framhaldsnámskeiði).

Öll námskeið eru uppbyggð þannig að byrjað er á bóklegri kennslu.  Síðan er farið í sundlaug til að læra undirstöðu í hreyfingu og notkun búnaðar.

Þar á eftir er farið í sjó/vatn með allan búnað til að æfa það sem búið er að læra.

Ný námskeið alla mánudaga enn hægt er að byrja strax á bóklega hlutanum!

Farið er í Sundhöll Reykjavíkur kl 19:00.

Þau námskeið sem í boði eru:

Aida 1 – 29.900kr
Aida 2 – 59.900kr
Aida 1 og 2 saman á 75.000kr
Aida 3 – 84.900kr
Padi 1 – 35.000kr
Padi 2 – 65.000kr

Frekari upplýsingar um Aida má finna hér.

Frekari upplýsingar um Padi má finna hér.

Ef þú hefur áhuga eða ert með spurningar endilega sendu póst á [email protected] eða hringdu í síma 8597220.