Við æfum fríköfun í sundlaug 1x í viku
Á mánudögum kl. 19:15 í sundhöll Reykjavíkur
Æfingarnar standa yfir í einn og hálfan tíma ca. Þessar æfingar kosta ekkert annað en inngangseyri í laugina.
Aðra hvora viku eru frjálsar æfingar (Fólk æfir það sem það ákveður sjálft)
Hina vikuna eru ákveðnar æfingar sem búið er að auglýsa á “Freedive in Iceland” síðu á fésbókinni.
Þessar æfingar eru settar upp fyrir fólk sem hefur allavega tekið grunnnámskeið í fríköfun.